Refund policy
Vöruskil
- Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við verð vörunnar sem greitt var skv. kvittun. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan gildir í tvö ár frá útgáfudegi. Ef vara var keypt í gegnum vefverslun www.isspor.is getur kaupandi óskað eftir endurgreiðslu í stað inneignarnótu enda séu vöruskil framkvæmd innan 14 daga. Endurgreiðsla skal miða við sama greiðslumáta og notaður var við kaup á vörunni í vefverslun. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Ef kaupandi velur að senda vöru sem hann vill skila, greiðir hann sjálfur sendingargjaldið til Ísspor.
Gölluð vara
- Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist.
